Námskeiðskerfi
Námskeiðskerfi hentar öllum skólum og fyrirtækjum sem bjóða upp á námskeið. Stundartafla skólans er hlaðinn inn í kerfið í upphafi annar og skjákerfið sér um að birta dagskrá hvers dags (eða viku) sem við á hverju sinni. Skráning getur farið fram hvort heldur sem er á borðtölvu, spjaldtölvu eða með snjall síma. Þegar námskeiðsdagurinn rennur upp sér skjákerfið um að birta tilkynningu á skjánum og lýkur birtingu þegar námskeiði er lokið.
Myndin hér að neðan sýnir dæmi um námskeiðsskjá í Rafiðnaðarskólanum í Reykjavík. Þar eru 3 stórir skjáir í öllum inngöngum skólans sem sýna námskeið sem eru í gangi eða eru framundan. Eins og í fundarkerfinu þá er hægt að hafa lítinn skjá fyrir utan hverja kennslustofu sem birtir bara hvað námskeið er næst eða er í gangi í þessari stofu í augnablikinu.
- Stóri skjárinn sýnir nafn námskeiðs, skólastofu, kennslutíma og örvar sem sýna hvert skal stefna til að finna salinn.
- Einnig er hægt að birta logo fyrir hverju námskeiði.
- Kerfið passar upp á að kennslustofa sé ekki tvíbókuð.
- Ef fleiri námskeið eru skráð en skjárinn ræður við, þá byrjar hann sjálfvirkt að skipta á milli fleiri skjámynda, þannig að fjöldi námskeiða fyrir kerfið er ótakmarkaður.
- Kerfið er miðað við að skráning fari fram með Skjánet innskriftarkerfinu, en einnig er hægt að nota Google Calander til að skrá fundi.
- Bakgrunnsmynd er hönnuð samkvæmt ósk skjáeiganda.
- Þessi skjár er einnig nýttur sem upplýsingakerfi með upplýsingum um hvaða fyrirtæki starfa í húsinu.
Sýnishorn af námskeiðsskjá:
Námskeiðs- og upplýsingaskjár í Rafiðnaðarskólanum í Reykjavík
Stórhöfði 21, 110 RVK | 561 3233 | skjamynd@skjamynd.is
Hluti af Joroma hugbúnaðarhúsi | Kt: 640221-2160 | Vsk nr: 140439