Skilmálar og vafrakökur

Hér finnurðu notkunarskilmála fyrir skjamynd.is, upplýsingar um vafrakökurnar sem við notum og hvernig við förum með upplýsingar sem þú sendir okkur. Vefurinn er rekinn af Skjámynd ehf.

Vafrakökur

Vafrakökur eru litlar textaskrár sem vefsíður vista í vafranum þínum. Við notum eins fáar og hægt er og engar markaðskökur nema þú samþykkir þær.

Nauðsynlegt

Við vistum val þitt um vafrakökur í vafranum þínum (skjamynd-consent) svo við þurfum ekki að spyrja aftur. Þetta er ekki sent neitt.

Markaðssetning (aðeins með samþykki)

Við notum Meta Pixel frá Meta Platforms Ireland Ltd. (Facebook og Instagram) til að mæla hvaða auglýsingar skila sér, t.d. hversu margir senda inn fyrirspurn eftir að hafa séð auglýsingu, og til að geta birt auglýsingar fyrir fólk sem hefur heimsótt vefinn.

Meta fær upplýsingar um hvaða síður þú skoðar, hvort þú sendir inn fyrirspurn eða smellir á símanúmer eða netfang, ásamt tæknilegum upplýsingum eins og IP-tölu og vafra. Meta vinnur þær samkvæmt persónuverndarstefnu Meta.

Persónuupplýsingar

Fyrirspurnir

Þegar þú sendir fyrirspurn í gegnum formið fáum við nafn, netfang og skilaboð, og fyrirtæki og síma ef þú gefur það upp. Við notum upplýsingarnar eingöngu til að svara þér og gera tilboð. Þær eru sendar með tölvupósti og ekki deilt með öðrum.

Hýsing og letur

Vefurinn er hýstur hjá Simply.com. Letrið á vefnum er sótt frá Google Fonts, sem þýðir að vafrinn þinn tengist þjónum Google þegar síðan opnast.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við höfum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, og að draga samþykki til baka hvenær sem er. Sendu okkur línu á skjamynd@skjamynd.is. Ef þú ert ósátt(ur) við meðferð upplýsinga getur þú leitað til Persónuverndar.

Notkunarskilmálar

Hafa samband

Skjámynd ehf. · 561-3233 · skjamynd@skjamynd.is