Námskeiðskerfi

Námskeiðskerfi

Námskeiðskerfi hentar öllum skólum og fyrirtækjum sem bjóða upp á námskeið.  Stundartafla skólans er hlaðinn inn í kerfið í upphafi annar og skjákerfið sér um að birta dagskrá hvers dags (eða viku) sem við á hverju sinni.  Skráning getur farið fram hvort heldur sem er á borðtölvu, spjaldtölvu eða með snjall síma. Þegar námskeiðsdagurinn rennur upp sér skjákerfið um að birta tilkynningu á skjánum og lýkur birtingu þegar námskeiði er lokið.

Myndin hér að neðan sýnir dæmi um námskeiðsskjá í Rafiðnaðarskólanum í Reykjavík. Þar eru 3 stórir skjáir í öllum inngöngum skólans sem sýna námskeið sem eru í gangi eða eru framundan. Eins og í fundarkerfinu þá er hægt að hafa lítinn skjá fyrir utan hverja kennslustofu sem birtir bara hvað námskeið er næst eða er í gangi í þessari stofu í augnablikinu.

Skýringar með mynd:
  • Stóri skjárinn sýnir nafn námskeiðs, skólastofu, kennslutíma og örvar sem  sýna hvert skal stefna til að finna salinn.
  • Einnig er hægt að birta logo fyrir hverju námskeiði.
  • Kerfið passar upp á að kennslustofa sé ekki tvíbókuð.
  • Ef fleiri námskeið eru skráð en skjárinn ræður við, þá byrjar hann sjálfvirkt að skipta á milli fleiri skjámynda, þannig að fjöldi námskeiða fyrir kerfið er ótakmarkaður.
  • Kerfið er miðað við að skráning fari fram með Skjánet innskriftarkerfinu, en einnig er hægt að nota Google Calander til að skrá fundi.
  • Bakgrunnsmynd er hönnuð samkvæmt ósk skjáeiganda.
  • Þessi skjár er einnig nýttur sem upplýsingakerfi með upplýsingum um hvaða fyrirtæki starfa í húsinu.

Sýnishorn af námskeiðsskjá:

Námskeiðs- og upplýsingaskjár í Rafiðnaðarskólanum í Reykjavík

 

Stórhöfði 21, 110 RVK | 517 5020 | skjamynd@skjamynd.is

Kt: 650501 3570 | Vsk nr: 71242